Rými fyrir borgarlínu undir Reykjanesbrautinni

Gert er ráð fyrir rými undir borgarlínu undir nýja brú …
Gert er ráð fyrir rými undir borgarlínu undir nýja brú á Reykjanesbraut sem liggur yfir Strandgötu. Ljósmynd/Borgarlínan

Vegagerðin vinnur nú að tvöföldun Reykjanesbrautarinnar og var meðal annars hönnuð ný brú yfir Strandgötuna.

Á Facebook-síðu borgarlínunnar er bent á að þar hafi verið tekið mið af væntanlegri legu borgarlínunnar og því hafi brúin verið hönnuð aðeins lengri en núverandi brú þannig að hægt sé að koma sérrými borgarlínunnar fyrir undir brúnni.

Með þessu geti vagnar borgarlínunnar því ferðast þar undir á leið sinni á milli Vallahverfis og annarra hverfa.

Borgarlínan mun liggja um Strandgötuna yfir í Vallahverfið.
Borgarlínan mun liggja um Strandgötuna yfir í Vallahverfið. Ljósmynd/Borgarlínan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert