37 þúsund fengið bætur í gegnum hlutastarfaleið

Vinnumálastofnun.
Vinnumálastofnun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rúmlega 37 þúsund manns hafa fengið atvinnuleysisbætur í gegnum hlutastarfaleiðina svokölluðu og starfa þeir hjá 6.436 vinnuveitendum. Heildarkostnaður ríkissjóðs vegna þessa stefnir í að verða nálægt 31 milljarði króna á þessu ári.

Þetta kemur fram í niðurstöðu úttektar Ríkisendurskoðunar á hlutastarfaleiðinni, sem eru atvinnuleysisbætur greiddar launamönnum vegna minnkaðs starfshlutfalls.

Aukið atvinnuleysi almennt og hlutastarfaleiðin gera það að verkum að útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs gætu orðið allt að 84 milljarðar króna á árinu. Er það 56 milljörðum krónum hærra en áætlað var í upphafi þessa árs.

Fjölmörg fyrirtæki hafa nýtt sér hlutastarfaleiðina vegna kórónuveirunnar.
Fjölmörg fyrirtæki hafa nýtt sér hlutastarfaleiðina vegna kórónuveirunnar. Ljósmynd/Landspítalinn/Þorkell Þorkelsson

„Ríkisendurskoðun bendir á að einstaklega erfiðar aðstæður sem vart eiga sér hliðstæðu hafi kallað á skjótar aðgerðir stjórnvalda til að styðja við launafólk í landinu og vinnuveitendur þess. Allt að einu er ljóst að úrræðið er opið og mikilvægt að umgjörð þess sé gerð skýrari en verið hefur. Þá þarf eftirlit með notkun þess að verða skilvirkara en verið hefur,“ segir í tilkynningu stofnunarinnar.

„Er úttekt þessi hluti af nýjum áherslum Ríkisendurskoðunar sem felast í auknu samtímaeftirliti með fjárreiðum ríkisins og hvernig ráðstöfun og meðferð opinbers fjár er háttað.“

Skúli Eggert Þórðarsson ríkisendurskoðandi.
Skúli Eggert Þórðarsson ríkisendurskoðandi. mbl.is/​Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert