Kári á fundi í Stjórnarráðinu

Stjórnarráðið við Lækjargötu.
Stjórnarráðið við Lækjargötu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, mætti á fund í Stjórnarráðinu í morgun.

Samkvæmt heimildum mbl.is var Kári boðaður á fundinn áður en hann fór í viðtal í Kastljósinu í gærkvöldi. Fleiri voru boðaðir á fundinn, sem snýst um skimanir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. 

Fréttablaðið birti mynd af honum ganga inn í Stjórnarráðið.

Í þættinum í gærkvöldi sagði Kári Íslenska erfðagreiningu ekki ætla að aðstoða við skimanir ef heilbrigðisráðuneytið verður við stjórnvölinn.

Kári Stefánsson.
Kári Stefánsson. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert