Hélt að hún hefði unnið 75 þúsund

EuroJackpot.
EuroJackpot.

Eldri kona vann 75,5 milljónir í EuroJacpot fyrir viku síðan en hún hélt að hún hefði unnið 75 þúsund krónur þegar hún leit á kvittun með vinningsupphæðinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá. Konan keypti miðann í  Vídeómarkaðnum í Hamraborg í Kópavogi.

„Um er að ræða margviknamiða sem innihélt þrjár raðir. Eigandi miðans lét renna miðanum í gegnum sölukassa til að athuga hvort á honum væri vinningur. Kassinn gaf frá sér vinningshljóð og kvittun með vinningsupphæðinni, í fyrstu hélt hún að vinningurinn væri upp á 75 þúsund krónur en þegar afgreiðslumaðurinn sagði henni að líta aftur og enn betur á miðann, varð henni ljóst að vinningurinn væri upp á rúmar 75,5 milljónir. Hún hreinlega bæði missti andann og andlitið af gleði og kom varla upp orði fyrr en heim var komið.

Konan, sem er á leiðinni á eftirlaun, segir að þessi gleðilegi vinningur eigi heldur betur eftir að koma sér vel, bæði fyrir hana og börnin hennar og hlakki hún nú til að setjast í helgan stein og vera laus við peningaáhyggjur,“ segir í tilkynningu en þess má geta að vinningurinn er skattfrjáls.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert