Mældist á 203 km hraða

Reykjanesbrautin.
Reykjanesbrautin. mbl.is/Árni Sæberg

Ökumaður sem mældist á 203 km hraða á klukkustund, þar sem hámarkshraði er 90 km, var handtekinn á Reykjanesbraut í vikunni.

Maðurinn, sem er erlendur, var einnig grunaður um ölvunarakstur, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Maðurinn var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða og var gert að greiða 420 þúsund krónur í sekt fyrir brot sín.

Tíu ökumenn til viðbótar voru staðnir að hraðakstri.

Þá voru höfð afskipti af ökumanni sem ók sviptur ökuréttindum með barn í bílnum.

Nokkur umferðarlagabrot til viðbótar voru skráð í vikunni. Tveir óku á negldum dekkjum, einn var grunaður um fíkniefnaakstur og skráningarnúmer voru fjarlægð af tveimur bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert