Vilja hafa frítt í ferjuna

Miklar skemmdir urðu á fiskvinnsluhúsi Hrísey Seafood í Hrísey í …
Miklar skemmdir urðu á fiskvinnsluhúsi Hrísey Seafood í Hrísey í gær. Ljósmynd/Birgir

Akureyrarbær er að kanna möguleika á því að niðurgreiðslur fargjalda í Hríseyjaferjuna verði auknar þannig að fólk geti farið út í Hrísey án endurgjalds.

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri vonast til að þetta verði til þess að fleiri ferðamenn, þá væntanlega íslenskir, sæki eyjuna heim í sumar og atvinna fólks við ferðaþjónustu glæðist.

Eyjasamfélögin sem tilheyra Akureyrarbæ, Hrísey og Grímsey, hafa orðið fyrir áföllum í atvinnulífinu. Mikill kvóti var seldur frá Grímsey snemma vetrar og húsnæði Hríseyjar Seafood brann í gærmorgun. Ferðaþjónusta hefur verið mikilvæg stoð í atvinnulífinu á sumrin á báðum stöðunum en nú ríkir óvissa um ferðamennskuna í sumar.

Í umfjöllun um málefni Hríseyjar eftir brunann í gær í Morgunblaðinu í dag segist Ásthildur  eigi að síður vera bjartsýn á framtíð beggja samfélaganna. Um Grímsey segir hún: „Íbúarnir þar eru þrautseigasta fólk sem ég hef hitt. Staðan er viðkvæm og erfið þegar fólki hefur fækkað mikið en í vor hafa margir snúið til baka. Grímsey er öflug verstöð og ég tel að langt sé í að þar verði ekki byggð.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert