Yfirstandandi kjaradeila ekkert gamanmál

Flugfreyjufélag Íslands hefur verið með opinn kjarasamning og engar launahækkanir …
Flugfreyjufélag Íslands hefur verið með opinn kjarasamning og engar launahækkanir í 18 mánuði. ASÍ segir allar vangaveltur í fjölmiðlum um hvernig koma megi Icelandair undan því að semja við FFÍ eiga sér litla stoð í raunveruleikanum. mbl.is/Árni Sæberg

Allar vangaveltur í fjölmiðlum um hvernig koma megi Icelandair undan því að semja við Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) eiga sér litla stoð í raunveruleikanum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu ASÍ þar sem bent er á að í gildi er kjarasamningur milli FFÍ og Icelandair sem aðrir eiga ekki aðild að. 

Þá er bent á að kjarasamningurinn sé skuldbindandi skv. lögum sem lágmarkskjarasamningur um kjör flugfreyja og flugþjóna hjá Icelandair. „Það þýðir að hann tekur jöfnum höndum til félagsmanna FFÍ og ófélagsbundinna í sömu störfum. Ráðning ófélagsbundinna starfsmanna er því ekki til þess fallin að ná fram lækkun launa niður úr lágmarkskjörum gildandi kjarasamnings,“ segir í yfirlýsingunni. 

Greint var frá því í Morgunblaðinu í síðustu viku að komið hafi til tals að setja á laggirnar nýtt stéttarfélag flugfreyja. 

„Sem betur fer hafa stjórnendur Icelandair borið þetta af sér enda væru þeir brotlegir við lög nr. 80/1938 ef satt væri,“ segir í yfirlýsingu ASÍ og vísar þannig í lög um stéttarfélög og vinnudeilur. „Fyrirtækinu er einnig fyllilega ljóst að aðgerðir í anda þeirra vangaveltna sem settar hafa verið fram myndu leiða til þess að kjaradeila aðila myndi herðast til muna og leiða til vinnustöðvunar innan skamms. Við þær aðstæður er öllum aðildarfélögum ASÍ heimilt að efna til löglegra samúðarvinnustöðvana til stuðnings vinnustöðvun FFÍ,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni. 

Geta ekki sagt sig úr félaginu á þessari stundu

ASÍ bendir á að samkvæmt félagslögum FFÍ geta félagsmenn ekki sagt sig úr félaginu eftir að kjaradeilu hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. Þar er kjaradeilan stödd nú. Meðan svo er getur annað stéttarfélag ekki tekið upp kjarasamningsviðræður fyrir þeirra hönd. 

Yfirstandandi kjaradeila FFÍ og Icelandair er engum neitt gamanmál, að því er segir í yfirlýsingunni. FFÍ hefur verið með opinn kjarasamning og engar launahækkanir í 18 mánuði. „Kjör félagsmanna hafa því rýrnað. Því til viðbótar er þess krafist að laun þeirra lækki varanlega um a.m.k. fimmtung. Á sama tíma kemur FFÍ til viðræðna við Icelandair af fullri ábyrgð í ljósi þeirra erfiðleika sem að fyrirtækinu stafa og hefur verið tilbúið til þess að taka fullan þátt í endurreisn þess af sömu ábyrgð og aðrir flugliðar hafa gert.“ 

Síðasti fundur í kjaradeilunni fór fram á miðvikudaginn í síðustu viku. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu ríkissáttasemjara.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert