Þrír fá bónusvinning — fimmfaldur pottur næst

Enginn var með allar réttar í kvöld sem þýðir að …
Enginn var með allar réttar í kvöld sem þýðir að potturinn verður fimmfaldur í næstu viku. Mynd/mbl.is

Enginn var með allar tölur réttar í Lottóútdrætti kvöldsins og verður potturinn því fimmfaldur í næstu viku.

Þrír skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver þeirra rúmlega 240 þúsund krónur. Tveir miðanna eru í áskrift en sá þriðji var keyptur í Vídeómarkaðnum í Kópavogi.

Fjórir voru með fjórar réttar Jókertölur í réttri röð og fá þeir 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir í Olís í Mosfellsbæ, Holtanesti í Hafnarfirði, á lotto.is og einn er í áskrift.

Tölur kvöldsins má finna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert