Konan sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gær, Áslaug Eik Ólafsdóttir er fundin heil að húfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni sem þakkar fyrir veitta aðstoð.
Uppfært klukkan 10:33, 1. júní.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Áslaugu Eik Ólafsdóttur, 25 ára, en síðast er vitað um ferðir hennar í Reykjavík síðdegis í gær, laugardag. Áslaug er 161 sm á hæð, með mjög stutt brúnt hár og græn augu. Hún er klædd í drapplitaðar gallabuxur, hvítan stuttermabol, strigaskó, ljósbleika dúnúlpu og gráa húfu. Áslaug er með heyrnartól og bakpoka meðferðis.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Áslaugar, eða vita hvar hún er niðurkomin, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.