Um 300 skjálftar nærri Grindavík það sem af er helginni

Samkvæmt nýjum gögnum eru vísbendingar um að landris sé hafið …
Samkvæmt nýjum gögnum eru vísbendingar um að landris sé hafið að nýju við Þorbjörn, þótt hægt sé. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jarðskjálftavirkni í nágrenni Grindavíkur hefur færst í aukana um hvítasunnuhelgina og hafa mælst um 300 skjálftar þar frá miðnætti í gær. 

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var stærsti skjálftinn 2,7 að stærð, en hann mældist í gær. Í nótt varð skjálfti af stærð 2,5 í sem fannst í Grindavík. Heldur hafði dregið úr skjálftavirkni á Reykjanesskaga síðustu vikur en rúmlega 120 jarðskjálftar mældust þar í síðustu viku

Samkvæmt nýjum gögnum eru vísbendingar um að landris sé hafið að nýju við Þorbjörn, þótt hægt sé. Líkt og Hulda Rós Helga­dótt­ir, nátt­úru­vár­sér­fræðing­ur á Veður­stof­unni, sagði í sam­tali við mbl.is, í gær er þörf á frekari gögnum til að fullyrða frekar um núverandi ferli og þær hættur sem því fylgja. 

Almannavarnir lýstu yfir óvissustigi vegna landriss vestan við fjallið Þorbjörn í janúar og er það enn í gildi.

Fréttin hefur verið uppfærð.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert