Tvítugur á reynslulausn úrskurðaður í varðhald

Maðurinn var dæmdur í árs fangelsi í mars en var …
Maðurinn var dæmdur í árs fangelsi í mars en var á reynslulausn þegar hann var handtekinn um helgina. mbl.is/​Hari

Tvítugur karlmaður hefur verið úrskurðaður í tæplega fjögurra vikna gæsluvarðhald, til 26. júní, vegna heimilisofbeldis. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Stöðvar tvö. Maðurinn var dæmdur í árs fangelsi í mars en var á reynslulausn þegar hann var handtekinn um helgina. 

Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn staðfestir að maðurinn hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í samtali við Vísi. Hann er grunaður um alvarlegt heimilisofbeldi gagnvart nátengdum aðila. 

Sem fyrr segir var maðurinn dæmd­ur í tólf mánaða fang­elsi fyrr á þessu ári fyr­ir brot gegn tveim­ur fyrr­ver­andi kær­ust­um sín­um sem báðar voru ung­ar að árum þegar maður­inn framdi brot­in. Önnur kon­an er einnig barn­s­móðir manns­ins.

Málið hef­ur verið til um­fjöll­un­ar í fjöl­miðlum áður en árás­in ber með sér að hafa verið þess eðlis að stúlk­an kunni að hafa verið í lífs­hættu meðan á henni stóð. Eft­ir árás­ina hélt maður­inn á blóðugri stúlk­unni yfir Geirs­göt­una frá Hafn­ar­svæðinu. Þá sagði hann að um væri að ræða „mjög drama­tísk sam­bands­slit“.

Dóm­ur yfir mann­in­um var mildaður vegna játn­inga hans og ungs ald­urs. Tólf mánaða fang­elsis­vist þótti hæfi­leg refs­ing og ekki til­efni til að skil­orðsbinda hana. Maður­inn hafði setið nán­ast óslitið í gæslu­v­arðhaldi frá 19. októ­ber og var því laus úr fangelsi þegar hann var handtekinn um helgina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert