Allt að 18 stiga hiti fyrir austan

Kort/Veðurstofa Íslands

Vestlæg átt, gola eða kaldi í dag en strekkingsvindur norðvestanlands í kvöld. Skýjað veður, úrkomulítið og milt vestan til á landinu. Bjart með köflum eystra og þar kemst hitinn líklega í 16 til 18 stig. Snýst í norðanátt síðdegis á morgun og léttir víða til.

Norðaustan 5-13 m/s á fimmtudag með skúrum, jafnvel slydduéljum norðaustanlands en þurrt að kalla á Vesturlandi. Kólnandi veður að því er segir á vef Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Á miðvikudag:
Vestan 5-13 m/s og skýjað, en bjartviðri SA-lands. Norðlægari og rofar til síðdegis. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á SA-landi.

Á fimmtudag:
Norðaustan 5-13 og skúrir eða slydduél, einkum síðdegis en úrkomulítið V-lands. Hiti 2 til 14 stig, hlýjast SV-til.

Á föstudag:
Norðan 8-13 m/s, en 13-18 austast. Él á NA- og A-landi, en bjart með köflum sunnan heiða. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst.

Á laugardag:
Minnkandi norðanátt. Bjartviðri S-lands, annars skýjað en úrkomulítið. Áfram svalt í veðri.

Á sunnudag (sjómannadaginn):
Breytileg átt og skýjað með köflum. Hiti 4 til 13 stig, hlýjast á S- og V-landi.

Á mánudag:
Útlit fyrir suðaustanátt með rigningu S- og V-lands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert