Atómstöðin – endurlit fær tólf 

Atómstöðin – endurlit fær flestar tilnefningar til Grímunnar 2020.
Atómstöðin – endurlit fær flestar tilnefningar til Grímunnar 2020. Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Atómstöðin – endurlit eftir Halldór Laxness Halldórsson og Unu Þorleifsdóttur byggt á skáldsögu Halldórs Laxness í sviðsetningu Þjóðleikhússins hlýtur flestar tilnefningar til Grímunnar, Íslensku sviðslistaverðlaunanna, eða 12. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var í Tjarnarbíói fyrr í dag. 
Eyður eftir Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið hlýtur 11 tilnefningar.  Engillinn og Þel eru með 10 tilnefningar hvor sýning. Alls eru 25 verk tilnefnd af 44 innsendum þetta árið. Samtals eru tilnefningarnar 88 í 18 flokkum. 
Eyður í uppfærslu Marmarabarna hlýtur næstflestar tilnefningar í ár eða …
Eyður í uppfærslu Marmarabarna hlýtur næstflestar tilnefningar í ár eða 11 talsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Gríman verður afhent í Borgarleikhúsinu 15. júní og sýnd beint í Ríkissjónvarpinu. Veitt eru verðlaun í 18 flokkum auk heiðursverðlauna Sviðslistasambands Íslands. Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum reyndist ekki unnt að tilnefna og verðlauna í flokkinum Útvarpsverk ársins þar sem ekki voru framleidd nógu mörg útvarpsverk hjá RÚV þetta árið, en þau þurfa að lágmarki að vera sjö.
Vegna samkomubannsins sem sett var á í mars náðu ekki nógu margir dómnefndarmenn að sjá tvær sýningar sem færast af þeim sökum yfir á næsta verðlaunaár. Þetta eru sýningarnar Níu líf í Borgarleikhúsinu og Mæður í Iðnó. 


Sproti ársins

  • Fjöllistahópurinn Endurnýttar væntingar fyrir Endurminningar valkyrju. Með þessari draggrevíu tókst hópnum að glæða sviðslistir enn meiri fjölbreytileika, varpa skæru glimmerljósi á jaðarinn og gera óhefðbundnu listformi hátt undir höfði.
  • Sviðslistafólk á Íslandi fyrir sitt óeigingjarna framlag á tímum Covid. Fyrir að standa vaktina þrátt fyrir allt, halda listinni lifandi og næra þjóðina þegar hún þurfti mest á því að halda
  • Listhópurinn Huldufugl fyrir verkið Kassinn, þar sem leikhúsi og sýndarveruleika er blandað saman á frumlegan og skemmtilegan hátt og áhorfandinn er gerður að miðpunkti sýningarinnar.
  • Reykjavik Dance Festival fyrir að helga hátíðina á þessu leikári öllum þeim sem ekki hafa átt kastljósið á sviði. RDF afhenti ýmsum hópum eins og börnum, eldri borgurum, unglingum, fötluðum og konum, vettvang hátíðarinnar og studdi þau í að skapa ný sviðslistaverk á sínum forsendum, með sinni eigin sýn á samfélagið.
  • Reykjavik Ensemble International Theatre Company fyrir að skapa spennandi vettvang fyrir sviðslistafólk af erlendum uppruna sem býr á Íslandi og hefur átt erfitt með að koma list sinni á framfæri. Á þessum nýja vettvangi gefst íslenskum sviðslistamönnum jafnframt tækifæri til að eiga í skapandi samskiptum við listamenn með annars konar bakgrunn og reynslu.
Gosi, ævintýri spýtustráks, er meðal þeirra sýninga sem tilnefnd er …
Gosi, ævintýri spýtustráks, er meðal þeirra sýninga sem tilnefnd er sem barnasýning ársins. Ljósmyndun/Grímur Bjarnason og Bjarni Grímsson


Barnasýning ársins

  • Galdragáttin og þjóðsagan sem gleymdist, Leikhópurinn Umskiptingar í samstarfi við Leikfélag Akureyrar
  • Gosi, ævintýri spýtustráks,  Borgarleikhúsið
  • Karíus & Baktus,  Daldrandi ehf
  • Mamma klikk,  Gaflaraleikhúsið
  • Þitt eigið leikrit II – Tímaferðalag,  Þjóðleikhúsið
Lee Proud er tilnefndur fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins í …
Lee Proud er tilnefndur fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins í Vorið vaknar. Ljósmynd/Auðunn Níelsson

Dans- og sviðshreyfingar ársins

  • Ásgeir Helgi Magnússon og Cameron Corbett – Endurminningar valkyrju, Endurnýttar væntingar í samstarfi við Tjarnarbíó
  • Hrefna Hallgrímsdóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir – Brot af því besta með Skoppu og Skrítlu, Skrítl ehf
  • Katrín Gunnarsdóttir  Brúðkaup Fígarós, Íslenska óperan í samstarfi við Þjóðleikhúsið
  • Lee Proud – Vorið vaknar, Leikfélag Akureyrar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
  • Marmarabörn  Eyður, Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Danshöfundur ársins

  • Elina Pirinen – Rhythm of Poison, Íslenski dansflokkurinn
  • Katrín Gunnarsdóttir – Þel, Íslenski dansflokkurinn
  • Rósa Ómarsdóttir – Spills, Rósa Ómarsdóttir, Tjarnarbíó, Reykjavík Dance Festival og Kunstenwerkplaats Pianofabriek
Katrín Gunnarsdóttir danshöfundur og Eva Signý Berger leikmyndahönnuður eru báðar …
Katrín Gunnarsdóttir danshöfundur og Eva Signý Berger leikmyndahönnuður eru báðar tilnefndar fyrir sýninguna Þel. mbl.is/Hari


Dansari ársins

  • Elín Signý W. Ragnarsdóttir – Þel, Íslenski dansflokkurinn
  • Katrín Gunnarsdóttir – Eyður, Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið
  • Rósa Ómarsdóttir – Spills, Rósa Ómarsdóttir, Tjarnarbíó, Reykjavík Dance Festival og Kunstenwerkplaats Pianofabriek
  • Shota Inoue – Þel, Íslenski dansflokkurinn
  • Sigurður Andrean Sigurgeirsson – Þel, Íslenski dansflokkurinn
Söngkonurnar Eyrún Unnarsdóttir, Karin Torbjörnsdóttir og Þóra Einarsdóttir eru allar …
Söngkonurnar Eyrún Unnarsdóttir, Karin Torbjörnsdóttir og Þóra Einarsdóttir eru allar tilnefndar sem söngvari ársins fyrir frammistöðu sína í Brúðkaupi Fígarós. Ljósmynd/Jóhanna Ólafsdóttir

Söngvari ársins

  • Eyrún Unnarsdóttir – Brúðkaup Fígarós, Íslenska óperan í samstarfi við Þjóðleikhúsið
  • Karin Torbjörnsdóttir – Brúðkaup Fígarós, Íslenska óperan í samstarfi við Þjóðleikhúsið
  • Rúnar Kristinn Rúnarsson  Vorið vaknar, Leikfélag Akureyrar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
  • Valgerður Guðnadóttir – Mamma klikk, Gaflaraleikhúsið
  • Þóra Einarsdóttir – Brúðkaup Fígarós, Íslenska óperan í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Hljóðmynd ársins

  • Aron Þór Arnarsson, Kristinn Gauti Einarsson og Gísli Galdur Þorgeirsson – Atómstöðin – endurlit,  Þjóðleikhúsið
  • Baldvin Þór Magnússon – Þel, Íslenski dansflokkurinn
  • Gunnar Karel Másson  Eyður, Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið
  • Kristján Sigmundur Einarsson og Elvar Geir Sævarsson – Engillinn, Þjóðleikhúsið
  • Nicolai Hovgaard Johansen – Spills, Rósa Ómarsdóttir, Tjarnarbíó, Reykjavík Dance Festival og Kunstenwerkplaats Pianofabriek

Tónlist ársins

  • Baldvin Þór Magnússon – Þel, Íslenski dansflokkurinn
  • Gísli Galdur Þorgeirsson – Atómstöðin – endurlit, Þjóðleikhúsið
  • Gunnar Karel Másson – Eyður, Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið
  • Pétur Ben Brúðumeistarinn  Brúðuheimar, í samstarfi við Þjóðleikhúsið
  • Pétur Ben og Elvar Geir Sævarsson  Engillinn, Þjóðleikhúsið

Lýsing ársins

  • Björn Bergsteinn Guðmundsson – Vanja frændi, Borgarleikhúsið
  • Halldór Örn Óskarsson – Eyður, Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið
  • Hákon Pálsson – Spills, Rósa Ómarsdóttir, Tjarnarbíó, Reykjavík Dance Festival og Kunstenwerkplaats Pianofabriek
  • Kjartan Þórisson – Þel, Íslenski dansflokkurinn
  • Ólafur Ágúst Stefánsson  Atómstöðin – endurlit, Þjóðleikhúsið

Búningar ársins

  • Eva Signý Berger  Þel, Íslenski dansflokkurinn
  • Guðný Hrund Sigurðardóttir – Eyður, Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið
  • Júlíanna Lára Steingrímsdóttir – Endurminningar valkyrju, Endurnýttar væntingar í samstarfi við Tjarnarbíó
  • Mirek Kaczmarek – Atómstöðin – endurlit, Þjóðleikhúsið
  • Þórunn María Jónsdóttir – Engillinn, Þjóðleikhúsið

Leikmynd ársins

  • Eva Signý Berger Þel, Íslenski dansflokkurinn
  • Finnur Arnar Arnarson – Engillinn, Þjóðleikhúsið
  • Gretar Reynisson / Myndband Elmar Þórarinsson – Helgi Þór rofnar, Borgarleikhúsið
  • Guðný Hrund Sigurðardóttir – Eyður, Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið
  • Mirek Kaczmarek – Atómstöðin – endurlit, Þjóðleikhúsið
Kristbjörg Kjeld er tilnefnd fyrir leik sinn í Er ég …
Kristbjörg Kjeld er tilnefnd fyrir leik sinn í Er ég mamma mín?

Leikkona ársins í aukahlutverki

  • Arndís Hrönn Egilsdóttir – Engillinn, Þjóðleikhúsið
  • Birgitta Birgisdóttir – Atómstöðin – endurlit, Þjóðleikhúsið
  • Ilmur Kristjánsdóttir – Engillinn, Þjóðleikhúsið
  • Katrín Halldóra Sigurðardóttir – Vanja frændi, Borgarleikhúsið
  • Kristbjörg Kjeld – Er ég mamma mín?, Kvenfélagið Garpur í samstarfi við Borgarleikhúsið
Hilmir Snær Guðnason og Katrín Halldóra Sigurðardóttir eru bæði tilnefnd …
Hilmir Snær Guðnason og Katrín Halldóra Sigurðardóttir eru bæði tilnefnd fyrir leik sinn í Vanja frænda. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Leikari ársins í aukahlutverki

  • Hilmir Snær Guðnason – Vanja frændi, Borgarleikhúsið
  • Hjalti Rúnar Jónsson – Galdragáttin og þjóðsagan sem gleymdist, Leikhópurinn Umskiptingar í samstarfi við Leikfélag Akureyrar
  • Hjörtur Jóhann Jónsson – Helgi Þór rofnar, Borgarleikhúsið
  • Oddur Júlíusson – Atómstöðin – endurlit, Þjóðleikhúsið
  • Pálmi Gestsson – Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur), Þjóðleikhúsið
Nína Dögg Filippusdóttir og Hilmir Snær Guðnason eru bæði tilnefnd …
Nína Dögg Filippusdóttir og Hilmir Snær Guðnason eru bæði tilnefnd fyrir leik sinn í sýningunni Eitur.

Leikkona ársins í aðalhlutverki

  • Ebba Katrín Finnsdóttir  Atómstöðin – endurlit, Þjóðleikhúsið
  • Katrín Gunnarsdóttir – Eyður, Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið
  • Lára Jóhanna Jónsdóttir  Shakespeare verður ástfanginn, Þjóðleikhúsið
  • Nína Dögg Filippusdóttir – Eitur, Borgarleikhúsið
  • Þuríður Blær Jóhannsdóttir – Helgi Þór, rofnar Borgarleikhúsið
Hjörtur Jóhann Jónsson er tilnefndur fyrir leik sinn í Helgi …
Hjörtur Jóhann Jónsson er tilnefndur fyrir leik sinn í Helgi Þór rofnar eftir Tyrfing Tyrfingsson sem er tilnefndur fyrir skrif sín. Ljósmyndun/Grímur Bjarnason og Bjarni Grímsson

Leikari árins í aðalhlutverki

  • Björn Thors – Atómstöðin – endurlit, Þjóðleikhúsið
  • Eggert Þorleifsson – Engillinn, Þjóðleikhúsið
  • Hilmar Guðjónsson – Helgi Þór rofnar, Borgarleikhúsið
  • Hilmir Snær Guðnason  Eitur, Borgarleikhúsið
  • Sveinn Ólafur Gunnarsson – Rocky!, Óskabörn ógæfunnar í samstarfi við Tjarnarbíó
Eggert Þorleifsson er tilnefndur fyrir leik sinn í Englinum.
Eggert Þorleifsson er tilnefndur fyrir leik sinn í Englinum. Ljósmydn/Saga Sig

Leikstjóri ársins

  • Finnur Arnar Arnarson – Engillinn, Þjóðleikhúsið
  • Kristín Jóhannesdóttir – Eitur, Borgarleikhúsið
  • Marmarabörn – Eyður, Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið
  • Una Þorleifsdóttir – Atómstöðin – endurlit, Þjóðleikhúsið
  • Vignir Rafn Valþórsson – Rocky!, Óskabörn ógæfunnar í samstarfi við Tjarnarbíó

Leikrit ársins

  • Atómstöðin – endurlit eftir Halldór Laxness Halldórsson og Unu Þorleifsdóttur, byggt á skáldsögu Halldórs Laxness, Þjóðleikhúsið
  • Engillinn eftir Finn Arnar Arnarson og Þorvald Þorsteinsson, Þjóðleikhúsið
  • Eyður eftir Marmarabörn, Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið
  • Helgi Þór rofnar eftir Tyrfing Tyrfingsson, Borgarleikhúsið
  • Kartöflur eftir Ýri Jóhannsdóttur og Hallveigu Kristínu Eiríksdóttur, CGFC í samstarfi við Borgarleikhúsið

Sýning ársins

  • Atómstöðin – endurlit, Þjóðleikhúsið
  • Engillinn, Þjóðleikhúsið
  • Eyður, Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið
  • Spills, Rósa Ómarsdóttir, Tjarnarbíó, Reykjavík Dance Festival og Kunstenwerkplaats Pianofabriek
  • Þel, Íslenski dansflokkurinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert