Val á milli sannleika og lyga

„Nú þarf fólk að velja á milli sannleikans og lyga. Skilin eru orðin of skörp,“ segir Bandaríkjamaðurinn Jef­frey Guar­ino, einn skipuleggjenda samstöðufundar á Austurvelli á eftir. Hann segir hjartnæmt að finna stuðning Íslendinga við málstað svartra í Bandaríkjunum.

Guarino hefur verið búsettur um árabil hér á landi og á hér börn og fjölskyldu en rætur hans liggja í New Haven í Bandaríkjunum þar sem ættfólk hans býr. Hann segist óttast um það nú og atburðir síðustu viku þar sem George Floyd var myrtur af lögreglumanni úti á götu hafa haft djúpstæð áhrif á hann sem svartan mann sem er uppalinn í Bandaríkjunum. Innbyggt og kerfisbundið misrétti á grundvelli kynþátta sé áþreifanlegt.

Í myndskeiðinu er rætt við hann um stuðninginn sem hann finnur hér á landi og atburði undanfarinna daga í heimalandinu. En einnig var rætt við hann hér á mbl.is um helgina.

Fundurinn hefst með upplestri á nöfnum þeldökkra einstaklinga sem hafa verið myrtir af lögreglunni, samkvæmt lýsingu um fundinn sem hefst kl.16:30.

Átta mínútna og 46 sekúndna þögn tekur við en það er sá tími sem lögreglumaðurinn Derek Chauvin lét þunga sinn hvíla á hálsi George Floyd áður en hann lést 25. maí. Þátttakendur eru hvattir til að bera andlitsgrímur og halda fjarlægð við aðra eftir bestu getu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert