„Black Lives Matter“ ritað á Hljómskálann

„Það er ömurlegt að fólk sé að þessu og undarlegt …
„Það er ömurlegt að fólk sé að þessu og undarlegt að ekkert sé hægt að gera í þessu.“ Ljósmynd/Aðsend

Stjórnandi Lúðrasveitar Reykjavíkur segir leiðinlegt að veggjakrot sé notað til þess að koma skilaboðum á framfæri, en þegar komið var að Hljómskálanum á þriðjudag blöstu þar við skilaboðin Black Lives Matter, slagorð sem notað er í réttindabaráttu svartra.

Lárus Halldór Grímsson segir í samtali við mbl.is að reglulega sé krotað á veggi Hljómskálans, en að borgin sjái gjarnan um að mála yfir slíkt. 

„Það er ömurlegt að fólk sé að þessu og undarlegt að ekkert sé hægt að gera í þessu.“

Mikil ólga er í Bandaríkjunum vegna dráps lögreglunnar á George Floyd. Samstöðumótmæli voru haldin á Austurvelli í Reykjavík síðdegis í gær og fóru þau friðsamlega fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert