Dúxinn með 9,72 í meðaleinkunn

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir og Nína Ann M Guðmundsdóttir, sælar og …
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir og Nína Ann M Guðmundsdóttir, sælar og glaðar. Ljósmynd/Aðsend

Útskriftir Menntaskólans í Kópavogi fóru fram 29. maí í Digraneskirkju. Dúx skólans í bóknámi er Nína Ann M. Guðmundsdóttir stúdent af raungreinabraut. Nína hlaut einkunnina tíu 29 sinnum og níu átta sinnum. Meðaleinkunn Nínu er 9,72 sem er þriðja hæsta meðaleinkunn í sögu skólans.

Nemendum var skipt í tvo hópa og voru báðar athafnirnar senda út í beinni útsendingu á netinu. Af verknámsbrautum luku fullnaðarprófi í sinni grein: 21 matreiðslumaður, 10 bakarar, 15 framreiðslumenn og 5 kjötiðnaðarmenn.

Fyrir framúrskarandi árangur á lokaprófi í verklegum greinum fékk Benedikt Þorvaldur Guðgeirsson Hjarðar kjötiðnaðarmaður sérstök verðlaun.

Fyrir framúrskarandi árangur á lokaprófi í verklegum greinum fékk Benedikt …
Fyrir framúrskarandi árangur á lokaprófi í verklegum greinum fékk Benedikt Þorvaldur Guðgeirsson Hjarðar kjötiðnaðarmaður sérstök verðlaun. Ljósmynd/Aðsend

71 lauk stúdentsprófi af bóknámsbrautum. 

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir stúdent af raungreinabraut hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir frábæran námsárangur með meðaleinkunn 9,27. Áslaug var á afrekssviði skólans og á að baki 34 landsleiki í knattspyrnu þar af 2 leik með A landsliði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert