Eggjaþjófar staðnir að verki

Þrír karlmenn voru staðnir að því að stela eggjum undan æðarkollum í varplandinu Stafnesi við Sandgerði fyrr í vikunni.

Þegar sá sem stóð þá að verki sá þá voru þeir að ganga um æðavarpið og voru allir með plastpoka. Hann ræddi við þá og sögðust þeir vera að taka myndir og fleira í þeim dúr en harðneituðu að hafa verið að tína egg. Engu að síður voru þrír plastpokar með samtals 135 eggjum, sem enn voru volg, skammt frá bifreið þeirra að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Lögreglan á Suðurnesjum færði mennina á lögreglustöð þar sem þeir höfðu gerst sekir um brot á reglugerð um friðun tiltekinna villtra fugla og friðlýsingu æðavarps.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert