Ekkert nýtt smit kórónuveirunnar greindist hér á landi síðasta sólarhringinn en rúmlega eitt hundrað fleiri eru í sóttkví.
Þetta kemur fram á covid.is.
Alls voru 277 sýni tekin hjá Íslenskri erfðagreiningu og 48 á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans.
Þeim sem eru í sóttkví fjölgar um 101 á milli daga og eru þeir nú 986 talsins. Tveir eru í einangrun og 1.794 hafa náð bata. 21.064 hafa lokið sóttkví.