Metfjöldi skráð sig í inntökupróf

Alls hafa 443 skráð sig í prófið.
Alls hafa 443 skráð sig í prófið.

Metfjöldi þátttakenda hefur skráð sig í inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði við læknadeild Háskóla Íslands, eða samtals 443. Það eru rúmlega 20 fleiri en í fyrra og tæplega hundrað fleiri en í hitteðfyrra.

Prófið fer fram dagana 11. og 12. júní.

Alls munu 344 þreyta inntökupróf í læknisfræði og fjölgar þeim um 21 milli ára. Þá sækja 99 manns um inntöku í sjúkraþjálfunarfræði eða einum fleiri en í fyrra. Sama próf er lagt fyrir alla þátttakendur og þeir sem standa sig best á prófinu eiga kost á að hefja nám.

Fer ekki fram við Hamrahlíð

Fjöldi þeirra sem hefur nám miðast við afkastagetu sjúkrahúsanna við verklega þjálfun nemenda. Í læknisfræði verða nú teknir inn 60 nemendur og í sjúkraþjálfunarfræði er fjöldinn sá sami og verið hefur undanfarin ár, eða 35 nemendur.

Inntökuprófið hefur um árabil farið fram í húsnæði Menntaskólans við Hamrahlíð en vegna framkvæmda þar fer prófið að þessu sinni fram í húsakynnum Háskóla Íslands. Inntökuprófið tekur tvo daga líkt og áður og samanstendur af sex tveggja tíma próflotum.

Þess má geta að þeir sem fara í prófið en komast ekki inn í læknadeild geta skráð sig í aðrar deildir Háskóla Íslands fram til 20. júlí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert