Gerð var tilraun til innbrots í tölvukerfi Reiknistofu bankanna og var brugðist við í samræmi við viðbragðsáætlun.
Brotist var inn í ysta netlag og eru engar vísbendingar um að komist hafi verið inn í kerfi RB og viðskiptavina.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
RB vinnur að úrlausn málsins með helstu sérfræðingum í netöryggismálum og samstarfsaðilum fyrirtækisins.
Við úrlausn varð þjónusturof kl. 13:07 sem hafði þær afleiðingar að truflanir eru í starfsemi netbanka og debetkorta. Áfram er unnið að úrlausn málsins og er gert ráð fyrir að kerfin verði orðin virk innan skamms, að því er segir í tilkynningu.
Uppfært kl. 14.02:
Þjónusturofið sem var í gangi hjá RB hefur verið leyst og kerfi eru aftur orðin virk.