Sjóður stofnaður í minningu Þorsteins Inga

Frá undirritun skipulagsskrár sjóðsins. Standandi frá vinstri: Árni Sigfússon, Guðrún …
Frá undirritun skipulagsskrár sjóðsins. Standandi frá vinstri: Árni Sigfússon, Guðrún Pétursdóttir, Þór Sigfússon, Halldóra Vífilsdóttir og Hermann Kristjánsson. Sitjandi eru Jón Atli Benediktsson og Bergþóra Karen Ketilsdóttir. Myndina tók Kristinn Ingvarsson. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Nýsköpunarsjóður dr. Þorsteins Inga Sigfússonar, eðlisfræðings, prófessors og fyrrverandi forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, hefur verið stofnaður undir hatti Styrktarsjóða Háskóla Íslands. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, undirritaði í dag skipulagsskrá sjóðsins ásamt stofnanda hans, Bergþóru Karen Ketilsdóttur, ekkju Þorsteins Inga.

„Tilgangur sjóðsins er að stuðla að auknum áhuga á nýsköpun og er hlutverk hans að styrkja efnilega frumkvöðla, nemendur eða vísindamenn, sem með einhverjum hætti sinna verkefnum eða rannsóknum er lúta að nýsköpun“, segir í tilkynningu frá Háskóla Íslands.

Stofnfé sjóðsins er 1,5 milljónir króna en áætlað er að úthluta árlega úr sjóðnum á afmælisdegi Þorsteins Inga.

Vildi draga úr losun koltvíoxíðs

Sjóðurinn er stofnaður í minningu Þorsteins Inga en hann lauk doktorsnámi í eðlisfræði frá Cambridge-háskóla í Englandi árið 1983 og var kjörinn „Research Fellow“ við Darwin College árið áður. Þorsteinn Ingi hóf störf sem fræðimaður við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands árið 1982 og síðar starfaði hann sem prófessor í eðlisfræði við háskólann. Þá stundaði fjöldi meistara- og doktorsnema rannsóknir undir hans leiðsögn.

Þorsteinn Ingi lést fyrir tæpu ári síðan, 65 ára að …
Þorsteinn Ingi lést fyrir tæpu ári síðan, 65 ára að aldri.

„Þorsteinn Ingi vann ötullega að tengingu háskóla og atvinnulífs og kom að stofnun og stjórnarmennsku sprotafyrirtækja á mörgum sviðum. Hann var frumkvöðull á sviði orkurannsókna á Íslandi, sat í stjórn Íslenskrar nýorku og var eindreginn talsmaður þess að draga úr losun koltvíoxíðs í andrúmslofti. Um árabil var Þorsteinn Ingi formaður framkvæmdanefndar alþjóðasamtakanna IPHE (International Partnership for the Hydrogen Economy) og einnig meðlimur í Samráðsþingi Columbia-háskóla um loftslagsbreytingar (Roundtable on Climate Change)“, segir í fyrrnefndri tilkynningu. 

Árið 2004 var Þorsteinn Ingi sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir vísindastörf og framlag til hátækniatvinnugreina. Hann varð svo forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands við stofnun hennar árið 2007 og sama ár hlaut hann rússnesku Alheimsorkuverðlaunin fyrir framlag sitt til vetnismála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert