Á 155 km hraða í Ártúnsbrekkunni

mbl.is/​Hari

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði för ökumanns í nótt sem mældist á 155 km hraða í Ártúnsbrekkunni. Hann þarf að greiða 230 þúsund krónur í sekt og er sviptur ökuréttindum í tvo mánuði.

Meðal verkefna lögreglunnar í nótt var að stöðva þrjá ökumenn fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í umdæminu. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og ökuréttindi þess þriðja voru útrunnin. Fáeinir kvörtuðu undan hávaðasömum nágrönnum í nótt, en þær tilkynningar hafa nú oft verið fleiri segir í Facebook-færslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert