Máli Fræðagarðs, Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga, Stéttarfélags lögfræðinga og Félags íslenskra félagsvísindamanna og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur verið vísað til ríkissáttasemjara.
Á vef Fræðagarðs segir að félögin hafi kannað viðhorf félagsmanna sinna til starfsmatskerfisins á fundum í kringum landið í janúar og febrúar. Félagsmenn telji starfsmatið ekki ná utan um störf háskólamenntaðra í félaginu.
Ríkissáttasemjari mun boða til fundar í málinu innan tíðar.