Greiða 15 þúsund fyrir sýnatöku

Farþegar sem koma til Íslands og kjósa að fara í sýnatöku vegna Covid-19 fremur en að sitja 14 daga í sóttkví, munu frá 1. júlí næstkomandi greiða 15.000 kr. gjald vegna sýnatökunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu

Sýnataka á landamærum hefst 15. júní og verður því gjaldfrjáls fyrstu tvær vikurnar. Börn fædd árið 2005 eða síðar þurfa ekki að fara í sýnatöku. Tillaga heilbrigðisráðherra um gjaldtökuna var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag.

„Eins og fram kemur í greinargerð sem kynnt var á síðasta ríkisstjórnarfundi, mæla hagfræðileg rök með því að ferðamenn verði látnir greiða fyrir kostnað við sýnatöku. Nú liggur fyrir að alþjóðaheilbrigðisreglugerðin stendur ekki í vegi fyrir slíkri gjaldtöku, enda sé sýnatakan valkvæð og tilkynnt með hæfilegum fyrirvara,“ segir í tilkynningunni. 

Gjaldið sem innheimt verður frá 1. júlí næstkomandi miðast við beinan kostnað ríkisins annan en stofnkostnað og er miðað við fyrirliggjandi kostnaðargreiningu sem fram kemur í skýrslu verkefnisstjórnar um sýnatöku fyrir COVID-19 á landamærum sem kynnt var í ríkisstjórn 26. maí síðastliðinn.

Lagaheimild til gjaldtöku vegna sýnatökunnar er í lögum um sjúkratryggingar og mun heilbrigðisráðherra gefa út reglugerð um gjaldtökuna og fleiri atriði sem varða sýnatökuverkefnið á næstu dögum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert