Sinueldur í Hafnarfirði

Ljósmynd/Aðsend

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út nú á sjöunda tímanum í kvöld vegna sinuelds í Vallahverfi í Hafnarfirði.

Slökkviliðsmenn eru nýkomnir á vettvang og segja að um „töluverðan“ eld sé að ræða.

Sjónarvottur sem ræddi við mbl.is sagði að um „ótrúlega mikinn reyk“ væri að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert