14 sóttu um embætti héraðsdómara

Skipað verður í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjaness 31. ágúst …
Skipað verður í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjaness 31. ágúst næstkomandi. mbl.is/Ófeigur

Alls voru 14 einstaklingar sem sóttu um embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjaness, sem auglýst var laust til umsóknar 24. apríl síðastliðinn. Skipað verður í embættið frá og með 31. ágúst 2020.

Þetta kemur fram á vef dómsmálaráðuneytisins. 

Meðal umsækjenda eru lögmenn, lektorar, aðstoðarmenn dómara og aðstoðarsaksóknari, en eftirfarandi sóttu um starfið: 

  1. Auður Björg Jónsdóttir lögmaður
  2. Guðfinnur Stefánsson, aðstoðarmaður héraðsdómara
  3. Guðmundína Ragnarsdóttir lögmaður
  4. Halldóra Þorsteinsdóttir lektor
  5. Herdís Hallmarsdóttir lögmaður
  6. Höskuldur Þórhallsson lögmaður
  7. Ingi Tryggvason lögmaður
  8. Ingólfur Vignir Guðmundsson lögmaður
  9. Ólafur Egill Jónsson, aðstoðarmaður héraðsdómara
  10. Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir lektor
  11. Sigurður Jónsson lögmaður
  12. Sólveig Ingadóttir, aðstoðarmaður héraðsdómara
  13. Súsanna Björg Fróðadóttir aðstoðarsaksóknari
  14. Þórhallur Haukur Þorvaldsson lögmaður

Umsóknirnar eru nú til meðferðar hjá dómnefnd sem fjallar um hæfni umsækjenda um embætti dómara. 

Í Héraðsdómi Reykjaness starfa 8 dómarar og hefur dómurinn aðsetur í Hafnarfirði. Heyra þessi sveitarfélög til umdæmi hans: Grindavíkurbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Garður, Sveitarfélagið Vogar, Reykjanesbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær og Kópavogsbær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert