Mikilvægt skref í rafvæðingu hafna tekið á Akureyri

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar, Pétur Ólafsson hafnarstjóri og Guðmundur Ingi …
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar, Pétur Ólafsson hafnarstjóri og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. Ljósmynd/Ragnar Hólm Ragnarsson

Samningur um styrkveitingu ríkisins vegna rafvæðingar hafna á Akureyri var undirritaður í morgun. Styrkurinn nemur 43,8 milljónum króna og verður nýttur til að rafvæða Tangabryggju.

Þetta kemur fram á vefsíðu Akureyrarbæjar. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Pétur Ólafsson hafnarstjóri rituðu undir samninginn að viðstaddri Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra á Akureyri.

Styrkurinn er hluti af fjárfestingarátaki stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og verður eins og áður segir nýttur til að rafvæða Tangabryggju.

Ásthildur bæjarstjóri sagði við tilefnið að Akureyrarbær vildi vera í fararbroddi í loftslagsmálum og að rafvæðing hafna væri eitt af stóru skrefunum í þá átt. Hún sagði mikilvægt að finna fyrir skilningi og áhuga Guðmundar Inga og ráðuneytis hans gagnvart verkefnum sveitarfélagsins.

Guðmundur Ingi hrósaði Akureyringum fyrir frumkvæði í umhverfismálum og lýsti ánægju með að geta lagt þessu mikilvæga verkefni lið.

Eftir undirritun var framkvæmdasvæðið á Tangabryggju skoðað en þar er unnið að því að lengja bryggjuna til Suðurs og um leið að koma fyrir raflögnum fyrir fraktskip og minni skemmtiferðarskip.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert