Vann 35 milljónir

Rétt rúmlega fertugur karlmaður fékk símtal í vinnuna á mánudaginn sem hann gleymir seint. Símtalið var frá starfsmanni Íslenskrar getspár sem tilkynnti honum að miðinn sem hann hafði keypt í gegnum lottóappið hefði fært honum rúmar 35,4 milljónir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá. 

Þar segir að maðurinn hafi ekki trúað þessu og hélt í fyrstu að einhver væri að gera grín. „Fyrsta verk verður að greiða niður skuldir, setja útborgun í íbúð og svo verð ég að gera eitthvað virkilega fallegt fyrir mömmu og pabba og líka dóttur mína,“ er haft eftir vinningshafanum.

„Alls voru rúmar 70,9 milljónir í pottinum síðasta laugardag en tveir heppnir miðaeigendur voru með allar tölurnar réttar. Hinn miðinn var seldur hjá Kvikk, Suðurfelli 4 í Reykjavík en sá vinningshafi hefur enn ekki gefið sig fram. Íslensk getspá hvetur því alla sem keyptu sér miða þar að fara vel yfir þá, því hver veit nema þú sért orðinn milljónamæringur,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert