Allt tilbúið fyrir sýnatökuna á mánudag

Frá Keflavíkurflugvelli fyrr í dag.
Frá Keflavíkurflugvelli fyrr í dag. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Æfing hófst í Flugstöð Leifs Eiríkssonar klukkan 14 í dag vegna sýnatöku ferðamanna sem hefst formlega á mánudagsmorgun.

Hér má sjá aðstöðuna.
Hér má sjá aðstöðuna. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Settir hafa verið upp básar og tölvukerfi sem heldur utan um upplýsingar um farþega. Á meðal þeirra sem voru á svæðinu þegar æfingin hófst var Alma D. Möller landlæknir. 

Alma D. Möller fylgdist með.
Alma D. Möller fylgdist með. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

„Aukaleikarar“ eru í hlutverki ferðamanna og þeir látnir fara í gegnum ferlið, auk þess sem tölvufræðingar og aðrir taka þátt í æfingunni svo allir verði klárir í slaginn á mánudaginn þegar raunverulegir ferðamenn koma til landsins.

Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrr í dag.
Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrr í dag. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert