Farsóttarhúsið við Rauðarárstíg opnað aftur í dag

Húsið verður aftur nýtt sem sóttvarnahús og mun Rauði krossinn …
Húsið verður aftur nýtt sem sóttvarnahús og mun Rauði krossinn sjá um að starfrækja það. Ljósmynd/Íslandshótel

Rauði krossinn opnar að nýju sóttvarnahús við Rauðarárstíg í dag og verður það starfrækt á meðan þurfa þykir. Sjúkratryggingar Íslands hafa einnig óskað eftir því að Rauði krossinn sjái um rekstur á slíkum húsum á Akureyri og Egilsstöðum.

Sóttvarnahúsinu, sem er Íslandshótelið á Rauðarárstíg og fékk viðurnefnið farsóttarhúsið, var lokað í maí en verður opnað aftur áður en ferðamenn byrja að streyma til landsins á morgun. Fyrst um sinn munu sjálfboðaliðar sjá um vaktir í húsinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum.

„Sjálfboðaliðar og starfsfólk er tilbúið til að sinna þessu sem verkefni, sem var og er krefjandi. Það gekk afar vel í vetur og ég þess fullviss að svo verði líka nú“ segir Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi.

Íslenska ríkið tók Íslands­hót­el á Rauðar­ár­stíg að leigu í lok fe­brú­ar og var húsið fyrstu tvær til þrjár vik­urn­ar nýtt sem sótt­varna­hús, þ.e. þangað fór fólk, gjarn­an ferðamenn sem höfðu ekki í önn­ur hús að venda, í sótt­kví. Eft­ir það hafi hús­inu verið breytt í far­sótt­ar­hús þar sem fólk, sem er með veiruna, dvel­ur. Gylfi Þór Þor­steins­son­ verður um­sjón­ar­maður hússins líkt og áður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert