Alvarleg líkamsárás í Reykjavík

mbl.is/Eggert

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú alvarlega líkamsárás sem átti sér stað nú í morgun í Reykjavík. Maður var handtekinn á vettvangi grunaður um að hafa veitt konu áverka með hníf á heimili hennar.

Konan var flutt á slysadeild og maðurinn eins og áður segir handtekinn, að því er lögreglan greinir frá í tilkynningu.

Nokkur viðbúnaður var hjá lögreglu vegna málsins enda óljóst í upphafi hvort fleiri væru inni á heimilinu. Ekki er hægt að veita nánari upplýsingar um málið að svo stöddu að sögn lögreglu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert