Þriggja leitað vegna rofs á sóttkví

Einstaklingarnir eru taldir tengjast tveimur hópum Rúmena, sem mbl.is hefur …
Einstaklingarnir eru taldir tengjast tveimur hópum Rúmena, sem mbl.is hefur fjallað um síðustu daga. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglan leitar þriggja einstaklinga sem grunaðir eru fyrir að hafa rofið sóttkví. Eru þeir allir erlendir ríkisborgarar sem komu til landsins síðasta mánudag.

Þegar mbl.is hafði samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu rétt eftir hádegi í dag voru einstaklingarnir enn ófundnir. Hópurinn var skráður í sóttkví á ákveðnu heimilisfangi, en þeir voru ekki við það heimilisfang þegar lögreglan athugaði málið.

Að sögn Guðmundar Páls Jónssonar lögreglufulltrúa eru einstaklingarnir hugsanlega tengdir hópi Rúmena sem rufu sóttkví í fyrrinótt með því að mæta á lögreglustöð til að láta vita um breyttan dvalarstað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert