Helgi Björnsson er borgarlistamaður Reykjavíkur

Helgi Björnsson er vel að heiðrinum kominn.
Helgi Björnsson er vel að heiðrinum kominn. Ljósmynd/Mummi Lú

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri útnefndi í dag, 17. júní, Helga Björnsson listamann sem borgarlistamann Reykjavíkur 2020 við hátíðlega athöfn í Höfða.

Útnefningin  er heiðursviðurkenning til listamanns sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslensku listalífi og samfélagi. Hjálmar Sveinsson formaður menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs gerði grein fyrir einhuga vali ráðsins á Helga. Listamanninum var veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og viðurkenningarfé.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Ætlaði að verða poppstjarna frá 10 ára aldri

„Helgi Björnsson er fæddur á Ísafirði 10. júlí árið 1958.  Foreldrar hans eru þau María Gísladóttir fyrrverandi leikskólakennari og Björn Helgason fyrrverandi málarameistari, skíðakappi og landsliðsmaður í fótbolta. Eiginkona Helga er Vilborg Halldórsdóttir leikkona, leikari, leiðsögumaður og textahöfundur með meiru.

Helgi hefur sjálfur sagt að hann var farinn bæði að leika og syngja sem strákur og ákvað 10 ára að hann ætlaði að verða poppstjarna þegar hann yrði stór.

Hann komst inn í leiklistarskólann haustið 1979 og útskrifaðist þaðan vorið 1983 ásamt Vilborgu og fleiri landsþekktum leikurum.

Við útskrift úr Leiklistarskólanum fékk Helgi tvö vinnutilboð: að syngja með hljómsveitinni Grafík og að taka að sér hlutverk Arngríms Árland í kvikmyndinni Atómstöðin.  Hann tók báðum tilboðum og þannig hófst hans tvískipti ferill, en allt frá þessu fyrsta sumri hefur hann jöfnum höndum sungið og leikið.

Stóð vaktina í faraldrinum

Þó svo að Helgi hafi æ síðan sinnt þessum tveimur „músum“ sínum jöfnum höndum, þá er það sennilega rokkarinn Helgi Björns sem flestir bera sterkar taugar til. Flestir Íslendingar geta raulað með lögum sem hann hefur sungið inn í meðvitund okkar með Grafík, SSSól eða Reiðmönnum vindanna hin síðari ár.  Helgi Björnsson er  rokkari sinnar kynslóðar, ekki síst vegna öflugrar og litríkrar sviðsframkomu – og svo vegna frasans sem eilíflega verður kenndur við hann: „Eru ekki allir sexý!“

Helgi Björns vann sig svo enn og aftur inn í hjörtu allra landsmanna með Heima-tónleikunum sjö sem sýndir voru beint í sjónvarpi Símans á meðan samkomubannið vegna Covid-19 stóð yfir.

Hugmyndina fékk hann þegar hann fylgdist með vinum sínum á Ítalíu sem sungu á svölum og streymdu örtónleikum úr stofunum sínum í útgöngubanni. Öllum viðburðum sem Helgi Björns hefði átt að taka þátt í hafði verið frestað og því fannst honum upplagt að gera eitthvað á þessa leið – búa til tónleika, nokkurs konar sveitaballsstemningu heima í stofu og senda í stofur allra landsmanna, þjóðinni til ómældrar skemmtunar og gleði.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert