„Takk pabbi“ á bak við Katrínu

Skiltin sjást illa en á þeim stendur takk pabbi og …
Skiltin sjást illa en á þeim stendur takk pabbi og takk fyrir peninginn. Skjáskot/RÚV

Fók sveiflaði skiltum á bak við Katrínu Jakobsdóttur með myndum af Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, á hátíðarhöldum á Austurvelli í dag á meðan Katrín flutti ræðu. 

Á skiltunum voru myndir af Þorsteini og börnum hans og stóð á þeim „takk pabbi“ og „takk fyrir peninginn“. Sömuleiðis var stór borði fyrir aftan Katrínu sem sást vel í útsendingu Ríkisútvarpsins sem ritað var á „Við eigum nýja stjórnarskrá!“

Skiptar skoðanir hafa verið á þeim þar arfi sem eig­end­ur Samherja greiddu af­kom­end­um sín­um fyr­ir fram nýlega. 

Engin læti virðast hafa verið í fólkinu sem á skiltunum hélt en skiltin voru ekki það eina sem vakti athygli á hátíðahöldunum. Karlmaður var handtekinn íklæddur óhefðbundnum fjallkonubúningi á Austurvelli. Hann hafði komið sér fyrir á svölum Pósthússtrætis 13 og flutti þar ræðu.

Lögregla hefur afskipti af mótmælendum.
Lögregla hefur afskipti af mótmælendum. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert