Lögreglan leitar að stolinni bifreið

Meðfylgjandi er mynd af sambærilegri bifreið.
Meðfylgjandi er mynd af sambærilegri bifreið. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir hvítum Chevrolet Cruze árgerð 2011 með skráningarnúmerið GUS15, en bílnum var stolið frá Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði í gær.

Sjáist bíllinn í umferðinni þá vinsamlegast hringið tafarlaust í 112 að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 

Upplýsingum um hvar bíllinn sé niðurkominn má sömuleiðis koma á framfæri í einkaskilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert