Starfsfólki Landspítalans verður umbunað um næstu mánaðamót

Ljósmynd/Þorkell Þorkellsson

Alþingi hefur samþykkt að umbuna starfsfólki Landspítalans sem hefur staðið vaktina í tengslum við kórónuveirufaraldurinn. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, greinir frá þessu í vikulegum pistli sínum. Upphæð umbunarinnar fer eftir viðveru starfsmanns í mars og apríl og getur numið allt að 250 þúsund fyrir þá sem skipa A-hóp. 

Páll segir í pistlinum, að í byrjun apríl hafi hann óskað eftir því við heilbrigðisráðherra „að okkur yrði gert kleift að umbuna með beinum hætti starfsfólki sem tók þátt í þessu gríðarlega átaki með okkur. Við því var snöfurmannlega brugðist og lagði heilbrigðisráðherra fram tillögu þessa efnis sem Alþingi samþykkti.“

Hann bætir við að undanfarnar vikur hafi verið unnið að því að útfæra greiðslur til starfsmanna í samstarfi við aðrar heilbrigðisstofnanir.

Allir fá umbun fyrir utan forstjórann, framkvæmdastjórn og forstöðumenn

„Í nýlegri örkönnun skrifstofu mannauðsmála kom fram að nær allir starfsmenn töldu sig hafa orðið fyrir áhrifum í starfi sínu vegna Covid-19. Það rímar ágætlega við þá ákvörðun að allir starfsmenn, að sjálfum mér og aðstoðarmanni mínum, framkvæmdastjórum og forstöðumönnum undanskildum, munu fá umbun greidda nú um næstu mánaðamót,“ skrifar Páll. 

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans. mbl.is/Kristinn Magnússon

Páll tekur fram að álagið hafi auðvitað verið mismikið og því hafi starfsfólki verið skipt í hópa.  Annars vegar þau sem starfi á einingum sem mest komu að þjónustu við COVID-smitaða (A- hóp) og svo aðrar starfseiningar spítalans (B-hóp).

„Upphæð umbunarinnar fer svo eftir viðveru starfsmanns í mars og apríl s.l. og getur numið allt að 250 þúsund fyrir þá sem skipa A-hóp og 105 þúsund fyrir aðra. Þetta hefur reynst flókið í útfærslu en við höfum átt mikið samráð hér á spítalanum vegna þessa og teljum að þetta sé sú leið sem rétt er að fara. Umbunin er þakklætisvottur frá stjórnvöldum sem að mínu mati sýnir skilning á þessu flókna verkefni sem þó er hvergi nærri lokið,“ skrifar Páll jafnframt. 

Hefur þungar áhyggjur af yfirvofandi verkfalli

Forstjórinn víkur orðum sínum einnig að kjaradeilu hjúkrunarfræðinga í pistlinum, en að óbreyttu er allt útlit fyrir að á mánudagsmorgun skelli á allsherjarverkfall Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

„Ég hef margoft sagt að ekkert sé verra og meira truflandi fyrir starfsemi sjúkrahúsa en verkfall og stend við það. Eftir erfiðan vetur og sérstaklega þungan fyrir starfsfólk okkar, þar sem hjúkrunarfræðingar voru sannarlega hryggjarstykkið í starfseminni, er afleitt að þetta sé sú staða sem uppi er. Landspítali sinnir mikilvægri en jafnframt viðkvæmri og flókinni starfsemi og það er skaðlegt þegar starfsemin er sett í uppnám vegna kjaradeilna ríkis og stéttarfélaga. Ég hef þungar áhyggjur af þeirri stöðu sem skapast mun hér strax á mánudagsmorgun og get ekki lagt nógu mikla áherslu á að samningsaðilar nái saman. Ábyrgð ríkisins og samningsaðila er gríðarleg og ég óska þeim góðs gengis í að finna farsæla lausn mála sem allra fyrst.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert