Lýsa yfir óvissustigi vegna jarðskjálftahrinu

Stærsti skjálftinn í dag var 5,6 að stærð og voru …
Stærsti skjálftinn í dag var 5,6 að stærð og voru upptök hans um 20 km norðaustur af Siglufirði. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi.

Jarðskjálftahrina hefur verið á Tjörnesbrotabeltinu, norðaustan við Siglufjörð, síðasta sólarhring og mældist stærsti skjálftinn 5,3 að stærð en hann varð klukkan 15:05 í dag. Umrætt svæði er þekkt jarðskjálftasvæði en núverandi hrina er þar sem Eyjafjarðaráll mætir Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu.

34 jarðskjálftar, 3 eða stærri, hafa mælst á Tjörnesbrotabelti síðasta …
34 jarðskjálftar, 3 eða stærri, hafa mælst á Tjörnesbrotabelti síðasta sólarhringinn. Sá stærsti var 5,6 að stærð. Kort/Veðurstofan

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.

Viðbúið er að grjóthrun geti orðið við þessar aðstæður og fólk er beðið um að hafa vara á undir bröttum hlíðum.

Fjöldi misgengja er á þessu svæði og ómögulegt er að segja hvaða áhrif stóri skjálftinn í nótt muni hafa á þau misgengi. Svæðið er hluti af Tjörnesbrotabeltinu; misgengissvæði milli rekbeltanna sem liggja um Ísland og norður eftir Kolbeinseyjarhrygg, og algengt er að þarna komi hrinur skjálfta.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hvetja fólk sem býr á þekktum jarðskjálftasvæðum til þess að gera viðeigandi ráðstafanir vegna jarðskjálfta. Frekari upplýsingar má nálgast hér


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert