Staðfesta ekki tengsl sendiráðsmannsins við bruna

Rússneska sendiráðið.
Rússneska sendiráðið. mbl.is/Eggert

Rússneska sendiráðið óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna manns sem lét ófriðlega við sendiráðið í dag. Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn segir ekki hægt að staðfesta neitt um tengsl hans við brunann sem varð á horni Vesturgötu og Bræðraborgarstígs á fjórða tímanum í dag en DV og Fréttablaðið greindu frá því fyrr í dag að tengsl væru á milli málanna tveggja. 

Lögreglan handtók manninn, sem er sagður hafa verið í annarlegu ástandi. Ekki fengust upplýsingar frá rússneska sendiráðinu um málið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert