Lögðu blóm við Bræðraborgarstíg

Fjöldi fólks lagði blóm framan við húsið við Bræðraborgarstíg.
Fjöldi fólks lagði blóm framan við húsið við Bræðraborgarstíg. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Heyra mátti saumnál detta þrátt fyrir að fjöldi fólks væri saman kominn framan við húsið við Bræðraborgastíg þar sem þrír létust í eldsvoða síðastliðinn fimmtudag.

Í kjölfar samstöðufundar á Austurvelli, þar sem athygli var vakin á bágri aðstöðu erlends verkafólks á Íslandi, leiddi lögregla göngu að húsinu og bauðst fólki að votta þeim látnu og aðstandendum þeirra virðingu sína með því að leggja blóm við húsið.

Samkvæmt ljósmyndara mbl.is sem var á staðnum liggur brunalyktin enn í loftinu og var sorgin og samúðin nánast áþreifanleg í samstöðunni.

Fjöldi fólks gekk fylktu liði frá Austurvelli að Bræðraborgarstíg.
Fjöldi fólks gekk fylktu liði frá Austurvelli að Bræðraborgarstíg. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
Lögreglan leiddi gönguna.
Lögreglan leiddi gönguna. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
Öryggisvörður liðsinnti fólki sem leggja vildi blóm framan við húsið, …
Öryggisvörður liðsinnti fólki sem leggja vildi blóm framan við húsið, enda vettvangur lokaður. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
Borgarstjóri vottaði virðingu sína.
Borgarstjóri vottaði virðingu sína. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
Sorgin og samstaðan var áþreifanleg.
Sorgin og samstaðan var áþreifanleg. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
Samstaða eftir brunann við Bræðraborgarstíg.
Samstaða eftir brunann við Bræðraborgarstíg. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
Slökkviliðinu þakkað fyrir starf sitt.
Slökkviliðinu þakkað fyrir starf sitt. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert