Á annað hundrað minntust hinna látnu

mbl.is/Arnþór Birkisson

Um 100 til 150 manns komu saman á kyrrðarstund við Bræðraborgarstíg nú klukkan sex. Þar var fólk saman komið til að votta þeim sem létust í bruna þar fyrir helgi virðingu sína og til þess að sýna samúð og sam­hug með þeim sem eiga um sárt að binda eft­ir elds­voðann. 

Virðing var í loftinu á kyrrðarstundinni og þögnin allsráðandi ef frá eru talin nokkur minningarorð sem flutt voru. Þau sem á kyrrðarstundina komu voru mörg hver með blóm sem lögð voru upp að húsinu sem brann. Kyrrðarstundin var á vegum íbúa Vesturbæjar og nágranna þeirra í gamla Vesturbænum.

Eins og áður hefur komið fram létust þrjú í brunanum en ekki hefur tekist að bera kennsl á þau með óyggjandi hætti. Þá missti fjöldi fólks heimili sitt, í það minnsta sex pólskir ríkisborgarar. 

Ljóst er að fólk er slegið vegna brun­ans en í gær var efnt til sam­stöðufund­ar á Aust­ur­velli, þar sem at­hygli var vak­in á bágri aðstöðu er­lends verka­fólks á Íslandi. Að því loknu leiddi lög­regla göngu að hús­inu og bauðst fólki að votta þeim látnu og aðstand­end­um þeirra virðingu sína með því að leggja blóm við húsið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert