Akstursþjónusta fatlaðs fólks verður Pant akstur

Fram undan eru breytingar á Akstursþjónustu fatlaðs fólks sem ekið …
Fram undan eru breytingar á Akstursþjónustu fatlaðs fólks sem ekið hefur undir merkjum Strætó síðastliðin 5 ár. Þjónustan mun hér eftir heita Pant akstur. Skjáskot/Pantakstur.is

Akstursþjónusta fatlaðs fólks tekur breytingum um mánaðamótin og fær meðal annars nýtt nafn: Pant akstur. 

Auk þess mun þjónustan fá nýtt útlit og nýjar reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks koma til framkvæmda. Á nýrri síðu, pantakstur.is, er hægt að fá upplýsingar um breytingarnar. 

Þá er nýbúið að bjóða út akstursþjónustuna og stefnt er að því að semja við Hópbíla um að sinna akstrinum næstu fimm til sjö ár.

Meðal helstu breytinga eru að felld verða brott ákvæði sem takmarka rétt á þjónustu, svo sem hjá fólki sem fær bílastyrk frá TR, og ferðafjöldi verður ekki takmarkaður. Þá verður aksturstími á stórhátíðardögum lengdur til klukkan 22 í stað 17.

Hér má sjá helstu breytingar sem taka gildi frá 1. júlí:

  • Pöntunartími þjónustuvers verður til kl. 16:00 á virkum dögum, var áður til kl. 18:00.  (Áfram er þó vakt eftir kl. 16.)
  • Aksturstími er styttur til miðnættis, þ.e. til kl. 24:00 í stað kl. 1:00. Á föstudags- og laugardagskvöldum er ekið áfram til kl. 1:00.
  • Í stað samráðshóps félagsmálastjóra er skipuð sérstök stjórn akstursþjónustu.
  • Unnið verður að því að efla notendur til aukins sjálfstæðis og frekari virkni í notkun almenningssamgangna samhliða akstursþjónustu.    
  • Myndavélar verða í öllum sérútbúnum bílum og verður slíkum bílum fjölgað úr 30 í 45. (Verktaki hefur ár til að mæta þessum kröfum).
  • Notkun leigubíla eykst að sama skapi úr 10% í 30% ferða og samið verður við ákveðna leigubílstjóra/leigubílastöð um fastar ferðir.
  • Beintenging verður við aksturskerfi leigubílastöðvar.
  • Notkun smáforrits sem hægt er að setja upp í snjalltækjum eins og síma og spjaldtölvum. Hægt að panta og afpanta ferðir í forritinu, sjá yfirlit yfir ferðir o.s.frv. Áætlað er að forritið verði tilbúið í október nk.
  • Heimasíðan akstursthjonusta.is verður pantakstur.is  Á heimasíðunni er að finna allar upplýsingar um þjónustuna. 
  • Verið er að skoða útfærslu umsókna/pantana með notkun íslykils/rafrænna skilríkja.

Allir notendur akstursþjónustu fatlaðs fólks fá sent bréf þar sem gerð er grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á þjónustunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert