Hjallastefnan til Ölfuss

Þórdís Jóna Sigurðardóttir, framkvæmdastýra Hjallastefnunnar, og Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss.
Þórdís Jóna Sigurðardóttir, framkvæmdastýra Hjallastefnunnar, og Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss. Ljósmynd/Aðsend

Búist er við því að Hjallastefnan taki yfir rekstur leikskólans Bergheima í Ölfusi á næstu dögum. Bæjarstjórn Ölfuss og Hjallastefnan eiga í markvissum samningaviðræðum með það að markmiði. Vilji samningsaðila til að ná saman er einbeittur og gagnkvæmur samkvæmt því sem fram kemur í sameiginlegri fréttatilkynningu.

„Ákvörðun þessi er tekin með það fyrir augum að gera góðan leikskóla enn betri. Sveitarfélagið Ölfus hefur nú þegar hafið samstarf við UNICEF og félagsmálaráðuneytið um innleiðingu á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og vonast bæjarstjórn til þess að með samningum við Hjallastefnuna fái starfsmenn enn betri faglegan stuðning og foreldrar og börn þeirra aukna þjónustu á grundvelli barnasáttmálans,“ er haft eftir Elliða Vignissyni, bæjarstjóra sveitarfélagsins Ölfuss, í tilkynningunni.

Vellíðan hvers barns alltaf forgangsatriði

Hjallastefnan rekur í dag 14 leikskóla og þrjá grunnskóla og starfar í tíu sveitafélögum. Allt kapp verður lagt á að vinna að yfirfærslu hratt og örugglega. Við samninga og innleiðingu verður þess gætt sérstaklega að vinna náið með starfsmönnum og foreldrum með hagsmuni barna að leiðarljósi þannig að sem minnst röskun verði.

„Þetta er heillandi samfélag sem við hlökkum til að vera í nánu samstarfi við. Hjallastefnan þakkar traustið í að gera góðan skóla enn betri en hugsjón um jafnrétti er okkar sterkasti hvati og við eigum erindi alls staðar þar sem það er vilji fyrir slíku í starfi með börnum og barnafjölskyldum.

Hjallastefnan hefur gríðarlega mikla reynslu í að taka yfir rekstur á skólum, en ánægja foreldra og starfsmanna er með því mesta sem gerist og sýnir skýrt fram á árangur Hjallastefnunnar. Forgangsatriði númer eitt er ávallt að mæta hverju barni eins og það er og vellíðan hvers barns er alltaf fyrsta og mikilvægasta verkefnið í hverjum skóla,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, framkvæmdastýra Hjallastefnunnar, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert