Hluta Vesturlandsvegar lokað vegna rannsóknar

Frá vettvangi slyssins í gær.
Frá vettvangi slyssins í gær. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Hluta Vesturlandsvegar verður lokað kl. 13 í dag í þágu framhaldsrannsóknar vegna banaslyss sem varð norðan Grundarhverfis í gær, en áætlað er að rannsóknin taki eina til tvær klukkustundir.

Frá þessu greinir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í tilkynningu.

Um er að ræða vegkaflann á milli Grundarhverfis og Hvalfjarðarvegar.

Lokunin hefur ekki áhrif á umferð til og frá Grundarhverfi, en öðrum er bent á hjáleið um Kjósarskarðsveg að sögn lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert