Alþingi veitti í nótt 17 manns ríkisborgararétt. Lög þess efnis voru samþykkt samhljóða á þriðja tímanum í nótt. 51 þingmaður greiddi atkvæði með samþykktinni en fjórir þingmenn Miðflokksins sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.
Alls bárust allsherjar- og menntamálanefnd 80 umsóknir um ríkisborgararétt á vorþingi, en lagt var til að 17 umsækjendum yrði veittur ríkisborgararéttur að þessu sinni.
Hinir nýju ríkisborgarar eru:
1. Adriana Rosa Barros, f. 1980 í Brasilíu.
2. Amina Gulamo Sulemane, f. 1952 í Mósambík.
3. Angella Evelyn Adong Ojara, f. 1985 í Úganda.
4. Anna Thanh Trinh, f. 1984 í Víetnam.
5. Antonia Esther Mbang Nchama, f. 1983 í M-Gíneu.
6. Faiz Alsaid Ali, f. 1969 í Sýrlandi.
7. Javier Mercado Alvarado, f. 1988 í Mexíkó.
8. Jeffrey Frederick Guarino, f. 1969 í Bandaríkjunum.
9. Jón Kristófer Fasth, f. 1989 á Íslandi.
10. Markuss Veidins, f. 2009 í Lettlandi.
11. Mehdi Neyayati Pedarsani, f. 1979 í Íran.
12. Mohammed Reza Moghadam, f. 1988 í Íran.
13. Seerwan Asaad Ali Shawqi, f. 1973 í Írak.
14. Selma Nur Özgen, f. 1987 í Tyrklandi.
15. Seyed Alireza Mousavimovahed, f. 1982 í Íran.
16. Tetiana Konovaltseva, f. 1989 í Úkraínu.
17. Yaira Duribe Azahares, f. 1984 á Kúbu.