Frí frá kórónuveirufaraldri á Íslandi

Á heimsreisu sinni voru Cindy og Thomas frá Frakklandi fegin …
Á heimsreisu sinni voru Cindy og Thomas frá Frakklandi fegin yfir opnun íslenskra landamæra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta er allt annað líf hérna. Í Hollandi er fólk með grímur á hverjum degi og talar allan daginn um kórónuveiruna, ég var orðinn hundleiður á því. En hér er eins og hún sé ekki til,“ segir hollenski ferðamaðurinn Carlos Zeegers.

Hann kom hingað til lands 19. júní til þess að ferðast og sinna sjálfboðastarfi í senn, hjá umhverfisverndarsamtökum. Örfáir ferðamenn leyndust í mannfjöldanum á sólríkum degi í miðbæ Reykjavíkur í gær þegar blaðamaður arkaði ásamt ljósmyndara í von um að taka einhvern tali.

„Þetta er búið að vera frábært frí, við gistum í Hafnarfirði og sigldum á dögunum til Vestmannaeyja,“ segir hann.

Sjá samtöl við ferðamennina í heild í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert