Haldi sig fjarri strönd eftir skjálfta

Viðsjár er þörf á Húsavík og víðar við Skjálfandaflóa vegna …
Viðsjár er þörf á Húsavík og víðar við Skjálfandaflóa vegna jarðskjálftahættu. Mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Óvissustig almannavarna á Norðausturlandi vegna jarðskjálftahrinunnar sem hófst 19. júní er enn í gildi og á meðan hrinan stendur yfir eru auknar líkur á stórum skjálftum á brotabelti norðan við land og áfram talin hætta á grjóthruni og skriðum úr bröttum hlíðum.

Í einstaka tilfellum fylgir flóðbylgja stærri skjálftum og því mikilvægt að fólk haldi sig fjarri strönd og höfnum í nokkrar klukkustundir eftir stærri jarðskjálfta.

Þetta kemur fram í tilkynningu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra á Facebook, það er að segja styttri útgáfunni. Lengri útgáfan fylgir einnig en í henni kemur m.a. fram að tæplega níu þúsund skjálftar hafi mælst í hrinunni og hún sé sú öflugasta í ríflega 40 ár.

Almenn tilmæli til almennings

Svæði þar sem skriðuföll geta átt sér stað má sjá á mynd sem fylgir færslunni en um stórt svæði er að ræða. Þá fylgja færslunni almenn tilmæli til almennings frá Veðurstofu Íslands verði jarðskjálfti >6 í nágrenni við Flatey á Skjálfanda eða Húsavík skal:

- Halda kyrru fyrir meðan að jarðskjálftinn ríður yfir.

- Halda sig frá byggingum sem hafa skemmst.

- Halda sig frá skriðuhlíðum.

- Halda sig frá höfninni og strönd vegna hugsanlegrar flóðbylgju af hafi næstu klukkustundir.

Búast má við að tugir eftirskjálfta finnist í nærumhverfi skjálftaupptakanna næstu 24 tímana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert