Sóttu slasaða göngukonu í Traðarvík

Björgunarsvetir á vettvangi í Traðarvík í dag.
Björgunarsvetir á vettvangi í Traðarvík í dag.

Björgunarsveitir á sunnanverðum Vestfjörðum voru klukkan tvö í dag kallaðar út vegna göngukonu sem hafði slasast á fæti í Traðarvík undir Sellátrafjalli í utanverðum Tálknafirði.

Staðurinn sem konan er á er úr alfaraleið og nokkuð torfær. Í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg kemur fram að þrír hópar hafi lagt af stað á vettvang og fyrsti hópurinn kom að konunni upp úr þrjú og hlúði að henni. 

Björgunarsveitarfólk er nú að flytja konuna af vettvangi til móts við sjúkrabíl. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert