Andris Kalvans sem leitað hefur verið að síðan í lok desember 2019 er fundinn látinn. Lögreglan á Vesturlandi greinir frá þessu í tilkynningu.
Við leit í dag naut lögreglan á Vesturlandi aðstoðar björgunarsveita og þyrlu landhelgisgæslunnar og fannst Andris í Haffjarðardal á því svæði þar sem hann hafði verið á göngu sinni.
Rannsókn lögreglunnar á Vesturlandi stendur yfir en ekkert bendir til þess að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað að sögn lögreglu.
Andris Kalvans sem leitað hefur verið að síðan í lok desember 2019 er fundinn látinn. Við leit í dag naut lögreglan á...
Posted by Lögreglan Vesturlandi on Laugardagur, 4. júlí 2020