Malbika Vesturlandsveg

Vesturlandsvegur.
Vesturlandsvegur.

Stefnt er að því að malbika Vesturlandsveg á morgun, mánudag, og þriðjudag. Malbikað verður rétt norðan Brautarholtsvegar og 1.700 metra til norðurs báðar akbrautir. Þrengt verður um eina akrein og viðeigandi merkingar settar upp eftir því sem fram kemur í tilkynningu. 

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá klukkan 8.30 til 23.00 báða dagana. 

Umferð verður handstýrt á eina akrein og má því búast við umferðartöfum. Vegfarendur eru beðnir að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert