Björgvin skipaður forstjóri Ríkiskaupa

Björgvin hefur víðtæka reynslu af innkaupum og vörustjórnun hjá alþjóðlegum …
Björgvin hefur víðtæka reynslu af innkaupum og vörustjórnun hjá alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Maersk, Aasted Aps, DT Group og Marel hf. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Björgvin Víkingsson sem forstjóra Ríkiskaupa frá og með 1. september næstkomandi.

Björgvin er með meistaragráðu í aðfangakeðjustjórnun (Management, Technology & Economics – supply chain management) frá Swiss Federal Institute of Technology og B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands, að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Björgvin hefur víðtæka reynslu af innkaupum og vörustjórnun hjá alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Maersk, Aasted Aps, DT Group og Marel hf. Þá hefur Björgvin jafnframt haldið vinnustofur og kennt vörustjórnun og stefnumarkandi innkaup við Háskólann í Reykjavík. 

Umsækjendur um embætti forstjóra Ríkiskaupa voru 34 talsins en þrír umsækjendur drógu umsókn sína til baka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert